Skype er tækni sem notar netið til að eiga í samskiptum. Hvort sem þú vilt hringja beint í tölvu eða síma (heima eða farsíma) þá sér Skype um það og þú getur hringt beint úr tölvunni þinni án þess að þurfa að greiða alþjóðleg gjöld. Skype hentar því hvort sem þú ert á ferðalagi og vilt að fólk geti náð í þig án þess að greiða há alþjóðleg símagjöld eða þú vilt vera í sambandi við vini og kunningja.
Hvað þarftu:
1. Tölvu með hljóðnema, hátalara (og vefmyndavél). Ef þú átt þetta ekki nú þegar þá er það ekkert mál, þú getur keypt það t.d. hjá Tæknibæ eða Tölvutek. Sölumenn geta aðstoðað þig við að fá góð tæki sem henta en almennt þarftu ódýr tæki og óþarfi að kaupa dýrar lausnir.
2. Skype, en þú getur sótt það á heimasíðunni þeirra.
3. Kaupa inneign af Skype , en ef þú hringir út úr skype í erlent númer þá notarðu inneigninga.
Að setja upp Skype
- Farðu á heimasíðu Skype og smelltu á takka sem segir: Get Skype
- Smelltu á takka sem segir “Get Skype for Windows” (mv. að þú sért með windows). Smelltu næst á “Register and Download” (skrá þig og sækja), til þess að búa til ókeypis reikning hjá Skype. Þú slærð inn upplýsingar um nafn, netfang, afmælisdag og hvar þú býrð (t.d. Reykjavík). Þú þarft að búa til notendanafn fyrir Skype (t.d. gudmundur – ath. ekki nota séríslenska stafi). Sláðu inn lykilorð fyrir reikninginn þinn, næst seturðu inn farsímanúmerið þitt. (Sjá mynd 1)
- Næst kemur Skype með lagafyrirvara, þú þarft að smella á “I aggre” takkann til að samþykkja skilmála Skype. Því næst geturðu sótt ókeypis Skype.
- Nú þarftu að finna hvar þú vistaðir Skype ef þú sérð ekki takka sem segir “run”, oftast er það í möppu sem heitir “My Documents/downloads” eða að þú sérð það á borðanum neðst á vafranum þínum. Nú smellir þú á skránna sem þú sóttir. Þú ert nú aftur spurður hvort þú samþykkir skilmála Skype. Þegar þú ert búin með það byrar Skype að koma sér fyrir á tölvunni þinni, það tekur nokkrar mínútur að afrita allar skrár og koma þeim fyrir á réttum stöðum. Þegar það er búið færðu skilaboð sem segja “Finsish” en með því klárar þú að setja upp Skype á tölvunni þinni. Því næst getur þú skráð þig inn í Skype. Þú slærð nú inn notendanafnið sem þú valdir áðan og lykilorðið.


- Nú ætti Skypa að vera tilbúið, þú getur nú prófað að leita að fólki sem þú þekkir á Skype. Það er gert með því að smella á takka sem heitir Add contact. Sjá mynd 6.
Þú getur leitað eftir nafni, netfangi, landi og fleiri þáttum til að hjálpa þér að finna fólk sem þú þekkir (mynd 7).
- Smelltu svo á Add contact til að bæta fólk á “vina listann þinn”. Nú geturðu hringt í fólkið í gegnum skype (eftir að það hefur samþykkt að leifa þér að taka á móti símtölum).
Ef þú lendir í frekari vandræðum eru hérna upplýsingar um tæknimál skype.











